born Clean die Straight
RugRats
smp867@hotmail.com
22.08.2006 14:57:29 / smel

ole

N'u er nyja s'idan ordin virk, l'enid er

http://sandramel.bloggar.is

Have Fun ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.08.2006 15:17:47 / smel

Det var brennivín i flasken da vi kom....



4 DAY'S PEOPLE !!!



» 2 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 14:37:34 / smel

Gonzales


Shit ég er búin að finna svo flott lag, ég get bara ekki hætt að hlusta á það, próið að hlusta á það, það er geggjað -  http://radioblogclub.com/open/106095/jose_gonzales/Jose%20Gonzales%20-%20Heartbeats

                                  

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 14:31:06 / smel

Shjæzzz


Það er bara rúmleg vika í að ég leggji land undirfótt og leggji á vit ævintýrana í danaveldi. Ég er ekki frá því að það er byrjaður að myndast smá fiðringur í malakútinum ásamt stórum skamti af kvíðaverk :S
Það er aldrei þægilegt að hafa ekki hugmynd um hvað bíður sín, reyndar eru allveg sumir sem fíla það en moi væri allveg til í að hafa svona pínupons hugmynd um hvað bíður mín þarna útí óvissunui.
Annars er kvíði ég eiginlega mest fyrsta deginum þarna í nýja skólanum því það er akkurat tvíttugs afmælisdagurinn minn og ég bara ein í einhverjum skóla, nýbyrjuð og þekki engan, ekki draumasfmælisdagur beint.
En ég er svona að reyna að vinna í því að fá fjölskylduna til að halda með mér svona þykkjó afmælisdag, þannig að ég vakna við þeirra fögru raddir einn morgunin er þau syngja fyrir mig afmælissöngin og svo á ég bara svona þykkjó afmæli yfir allan daginn, það gætt bætt þetta allt held ég :haha:

Svo er ný síða í myndun og þið fáið að vita lénið strax og ég fer út því þá getið þið fylgst með mér þarna úti í óvissuni, svo stay tuned ;)



» 2 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 16:17:17 / smel

...



Tjékkið á þessum ljóskubranadara, hrikkalega fyndin !

http://drumatix.wordpress.com/2006/06/27/besti-ljoskubrandari-allra-tima/


» 10 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 13:58:45 / smel

WTF


Hvað er í gangi?????

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 19:13:08 / smel

If I try to be like him, who will be like me??

NFS, 19. Júlí. 2006 08:51
 
Ók niður ljósastaur

Ökumaður bíls slapp lítið meiddur þegar hann ók niður ljósastaur við þjóðveginn í Mosfellsdal undir kvöld í gær. Bíllinn stórskemmdist.

Fallegi  rauði bílinn minn.....ónýtur :(

 

Farið eftir ljósastaurinn




Þeir sögðu að ef ég hefði ekki verið í belti væri ég jafnvel ekki hér til að segja frá þessu :S .
En sem betur fer var ég nú í belti og slapp með toggnun í hálsi :)

 

 




» 0 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 23:52:24 / smel

Eitt ríðumannafélag með spenastatífi takk



Já krakkar mínir Færøskir dagar á voru sko teknir með stæl um helgina.

 
Ég ásamt fríðu förunauti héltum á vit ævintýrana í Ólafsvík á föstudaginn. Við fórum af stað um hálf sjöog vorum komin til Ólafsvíkur um svona tíu þar sem það var stoppað í hverjum einasta bæ/þorpi/húsi/kofa/kammri á leiðinni þar sem pissublaðran var eitthvað voðalega takmörkuð hjá mér og Heiðdísi eftir allar Toyoturnar ;)
 
Eftir að við komum svo á staðinn rúntuðum við nokkra hringi um bæinn til þess að finna stað til að tjalda á. Og hvað haldiði, fundum við ekki bara þennan líka fína grasflött sem enginn var búin að tjalda á, skelltum við þá upp tjöldunum/nashyrningshrúgum, hentum svo upp nokkrum tjaldstólum og setumst svo í góðu chilli og byrjuðum að sötra bjór.
Neinei fór fólk sem lappaði fram hjá okkur ekki bara að horfa á okkur eins og við værum einhverjir móngólítar og hálftíma seinna föttuðum við að við höfðum ekki gert neitt minna en að tjalda barasta þarna á miðju ballsvæði.
Og innan klukkutíma var orðið allt yfirfullt af haugdrukknum pelabörnum og fleiru hressu fólki, eehehe ekki skrítið að það var enginn annar búin að tjalda þarna ::S
En ég meina við létum þetta ekkert á okkur fá, gat ekki verið betra, við þarna í góðum gír með heila hljómsveit þarna útaf fyrir okkur, ég meina kassagítar hvað??
 
Í þynkuni daginn eftir fórum við svo í sund á Grundó til að hressa okkur aðeins við og var svo haldið á bæjarpöbbin og horft á England-Portúgal og fengið sér gómsæta hráborgarar með frönskum, kók og Baileys, fiskinn minn nami, nami, namm, hey, hey.
Leikurinn fór þannig að Afturelding vann og Beckham fór að grenja og Rúní tók hægrihandar tvöfalda snúningssveiflu og .....ding.... Ronaldo úr leik, sagt og skrifað B.O.B.A......boooommbbbbbaaaaaa, vúúhúúú

Eða með öðrum orðum Portúgal vann..........

 
Endaði þetta svo með að vera allveg vel fjörugt kvöld og nótt og gerðist margt og mikið skemmtilegt sem er best geymt utan tökkum lyklaborðsins svo sem mörg mjög spess og mjög svo skemmtileg slagsmál, fiskur sem var ekki komin til að kúra og ýmislegt annað.
Fórum við svo að sofa um tíu um morguninn og vöknuðum aftur kl tvö, pökkuðum saman og fórum heim.





» 9 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 18:38:18 / smel

Há ar jú dúing


Jæja bara þrjár vikur síðan síðasta færslu, talandi um öflugan mótherja, újeee....

Vil ég að því gefnu tileinka þetta blogg ykkur sjö sem enþá komið inn á þessa fábrotnu síðu mína, heill sé þolinmæðinni !!

Og hvað er að frétta??

Ég er góð sko...

Bara öflug í vinnuni, fyrir ykkur sem ekki vitið það þá tók ég mig til og gerðist þjónn í Perluni, sem gengur barasta eins og í sögu, frábær vinna, frábært fólk, frábær staður og fyrir ykkur sem viljið vita eitthvað meira, horfið bara á WAITING, held að myndin hafi barasta verið byggð á þessu létt gegjðaða fólki sem vinnur þarna, á góðan hátt, barababaraba i'm loving it...


Svo er víst einhver bleikur dagur í dag, held barasta að ég fari í fína græna bolinn minn í tilefni dagsins, áfram Afturelding!!



» 15 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 15:38:38 / smel

Feliz Navidad


Fór í ammæli á miðvikudaginn. Nonni Quest hélt upp á þrítugsafmælið sitt á Nasa og var þemað Goth, stal nokkrum myndum frá Sigrúni til að sýna ykkur....



shit ég hefði nú ekki vilja mæta ykkur í dimmu húsasundi þetta kvöld, sjæss


The BirthdayBoy


Lilja


Hérna er einn vinur hans Nonna í pilsi 8|


Sigrún


Svavar ( honum var ekki hleypt inn á Pravda útaf málinguni bahahaha :haha: )


Veistu Dóri mér finnst þú eiginleg vera soldið fölur, kannski mála að skella sér í ljós eða eitthvað :klikk: ;)


ALLTBÚÚÚ!!!!



» 10 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 15:27:18 / smel

24, 24, over and out

Jæja nú er útskriftin búin og því komin tími á nýja færslu.                  

Dagurinn var annars frábær alla staði nema kannski athöfnin sem voru heilir tveir og hálfur tími zzzzzzzzzzzzzzz....... Annars beið besta gjöf sem ég hef nokkurtíman fengið eftir mér þegar ég kom niðrí skóla því þar beið bróðir minn eftir mér sem býr úti í Danmörku og hann hafði flogið óvænt alla leið hingað til þess að vera viðstaddur þegar að litla systir útskrifaðist, awww þú ert bestur :*

Eftir athöfnina var svo haldið heim þar sem ég var með smá júró, grill partý og var vægast sagt mikið fjör og mikið gaman. Eftir júróvision tókum við svo smá gítarstemmningu á þetta og fórum svo í bæinn. Fórum fyrst á Nösina þar sem var risa Evrópartý með Pál Óskari en þar var allt troðið þannig að við fórum bara fljótlega. Við djömmuðum svo langt fram eftir morgni og var mikið sungið og mikið dansað og var ég líka svo ótrúlega heppin að ég endaði með því að vera að djamma þarna með fjórum mössuðum lífvörðum, þannig að ef einhver svo mikið sem rakst í mig voru þeir komnir þarna úr öllum áttum, hahaha ekki slæmt :haha:

Annars eru hér nokkrar myndir from the big day..........enjoy 

             

Ég og litli hómíinn minn

 

Pálmi og Íris í góðu fjöri

Þetta er EKKI pabbi minn og þetta er EKKI frændi minn, þekki þetta lið ekki neitt ;)

       

Ég og bestasti bróðir minn :*

 

Dóri mongó og Sigrún sæta

   

Vá hvað þið erum að missa ykkur í hressleikanum ;)

       

Ich und Lilja lakkrísbomba

Freyji, Mútta og Lily ( svo er hlaðborði í baksýn, mmm þetta var sjúklega góður matur) 

 

Dóri DNA og Svavar

   Sigurgísli og Pálmi. Og Sigurgísli þurfti því miður bara að sætta sig við gítarinn hann litla bróður þar sem hans var í Danmörku


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 09:48:54 / smel

Gratulation/Graduation


 


Það er stór dagur í dag. Því nákvæmlega kl tvö í dag (sirka) mun hin fyrsta Sandra Melberg í heiminum setja upp hvítu kolluna og útskrifast sem stúdent.


Innilegar hamingjuóskir til samkolluppsetjara og meðfylgjenda.


Sjáumst hress 8)





» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 00:00:01 / smel

Bööörn og aðrir minna þroskaðir mennn....


Já það er allveg hrikkalegt hvað mannskepnan getur verið ógeðsleg!!!!.
Ég var eitthvað að láta mér leiðast á netinu um daginn og skoðaði bara allt sem ég gat skoðað og meðal annars datt ég inn á síðu sem heitir 69.is og er einhver tenglasíða.
Allt í lagi með það, nema hvað að þar var tengill inn á dýraverdunarsíðuna PETA þar sem var sýnt myndband með illa meðferð á dýrum. Og gvuð minn góður ég hef aldrei séð neitt jafn hræðilegt og ómannúðlegt!!!!
Við erum að tala um að þarna voru menn sem voru með fullt af einhverjum svona litlum dýrum eins og þvottabirni og eitthvað. Svo tóku þeir dýrinn upp á skotinu, léku sér að því að lemja þeim í jörðina hvað eftir annað og svo tóku þeir litlu sætu skepnurnar og fóru að leika sér að því að FLÁ þær lifandi og greyið skepnurnar voru enþá lifandi eftir að þær voru fláðar og ekkert nema skinn og bein og það í bókstaflegri merkingu!!!
þetta var ógeð!!!!
Ég hafði það ekki einu sinni í mér að klára að horfa á vídeóið þar sem mér var farið að vera allveg virkileg óglatt og líða illa yfir þessu. En ef þið viljið sjá þetta þá er tengill þarna á síðunni sem heitir "hræðileg meðferð á dýrum" en ég mæli samt EKKI með því að horfa á þetta!!

Annar datt ég líka inn á eitthvað quiz sem reiknar út "my seven most deadly sins", og viti þið hver var númer eitt hjá mér?? LETI, hmmm :haha: ,og samkvæmt þessu á dauðdagurinn minn eftir að vera þannig að ég á eftir að vera liggjandi einhverstaðar og svo eiga alltí einu eftir að koma fullt af pöddum skríðandi á mig og ég á eftir að vera allt of löt til þes að bursta þær af þannig að ég bara dey. Hahaha ég er einhvernmeginn ekki allveg að sjá það gerast að ég myndi ná að halda kúlinu með mörg hundruð pöddur skríðandi oná mér, þá myndi ég nú frekar deyja úr móðursýkiskasti ef það væri eitthvað, jakkkk.

En ef ykkur langar að spreyta ykkur á þessu og fá að vita hvernig þið eigið eftir að deyja, þá er quizið hér, bon appétit : http://www.blogthings.com/howsinfulareyouquiz/


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 17:25:16 / smel

I am the champion :)

ÉG NÁÐI, ÉG NÁÐI, ÉG NÁÐI, ÉG NÁÐI, ÉG NÁÐI!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ég náði nátúrufræði 123 sem ég er núna búin að berjast við í tvær annir að reyna að ná og skilja og ég náði stærðfræði áfanga sem er svo erfiður og leiðinlegur að næstum því enginn sem ég þekki hefur hætt sér út á þá braut að taka hann. En ég gerði það og náði, veiiiiiiiii ég er svooo klár ;)

Og nú ætla ég að fara gera eitthvað sem inniheldur eingu í líkindu við, Combination, Permutation, cos eða sin, af því að ég er svo hrikalega gáfuð að ég þarf aldrei aftur að líta þetta augum, jeeeeessssssssssssssssssssss!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Tilvonandi Stúdent kveður að sinni og óskar ykkur held og lykke i komandi prófum ;)



» 6 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 15:29:18 / smel

Those were the best days of my life!!!

    

Dimmitering 2006

Um Daginn....





















Um Kvöldið....
















Takk fyrir mig, þið eruð ÆÐI!!!!!



» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5